Manchester United er að endurheimta þrjá lykilmenn af meiðslalistanum fyrir stórleik gegn Liverpool á sunnudag.
Paul Pogba, Aaron Wan-Bissaka og Luke Shaw snúa væntanlega alir aftur og þá er möguleiki á að Anthony Martial geti verið í hópnum.
Paul Pogba, Aaron Wan-Bissaka og Luke Shaw snúa væntanlega alir aftur og þá er möguleiki á að Anthony Martial geti verið í hópnum.
Byrjun United á tímabilinu hefur verið erfið en liðið hefur ekki byrjað svona illa í 30 ár. Liðið er fimmtán stigum frá toppliði Liverpool.
Shaw og Martial hafa ekki spilað síðan í 2-1 tapi gegn Crystal Palace þann 24. ágúst og þá hefur Pogba misst af fimm af síðustu sjö leikjum vegna ökklameiðsla.
Wan-Bissaka hefur misst af þremur síðustu leikjum en er klár í slaginn aftur.
Athugasemdir