Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 14. desember 2019 21:07
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Haller hetja West Ham: Risastór sigur
Sebastien Haller.
Sebastien Haller.
Mynd: Getty Images
West Ham heimsótti Southampton í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni, niðurstaðan þar var 0-1 sigur gestanna sem komu sér þar með frá fallbaráttunni, þeir voru einu stigi frá fallsæti fyrir leikinn.

Sebastien Haller skoraði sigurmark West Ham, það gerði hann undir lok fyrri hálfleiks, eftir laglegt spil endaði boltinn í netinu.

„Síðasta vika var mjög erfið, sigurinn í dag var algjör risasigur fyrir okkur og frammistaðan mjög góð. Ég vona að þetta mark gefi mér og liðinu aukið sjálfstraust."

„Það var einnig sérstaklega ánægjulegt að skora þar sem ég skora nú ekki mikið með vinstri fæti," sagði Haller.

West Ham er í 15. sæti með 19 stig, fjórum stigum frá fallsæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner