Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 15. febrúar 2020 20:25
Brynjar Ingi Erluson
Þýskaland: Öruggur útisigur Gladbach
Mynd: Getty Images
Fortuna Dusseldorf 1 - 4 Borussia M.
0-1 Jonas Hofmann ('22 )
1-1 Erik Thommy ('29 )
1-2 Lars Stindl ('51 )
1-3 Lars Stindl ('77 )
1-4 Florian Neuhaus ('82 )

Gladbach kom sér upp í fjórða sæti þýsku deildarinnar með því að vinna Fortuna Düsseldorf 4-1 í kvöld.

Jonas Hofmann kom Gladbach yfir á 22. mínútu en forysta þeirra entist ekki lengi. Sjö mínútum síðar jafnaði Erik Thommy og skildu liðin jöfn í hálfleik.

Gladbach gerði hins vegar þrjú mörk í þeim síðari en Lars Stindl skoraði á 51. mínútu og svo aftur á 77. mínútu. Florian Neuhaus rak svo síðasta naglann í kistuna og lokatölur 4-1.

Gladbach er í fjórða sæti með 42 stig en Fortuna í 16. sæti með 17 stig.
Athugasemdir
banner