Fotbolti.net
15.02.21 - 09:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Heiða Helgudóttir frá Gróttu í ÍR (Staðfest)

Heiða Helgudóttir frá Gróttu í ÍR (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kvennaboltinn
Heiða Helgudóttir er gengin í raðir ÍR frá Gróttu.

Grótta segir frá þessu á Facebook og þakka Heiðu fyrir hennar störf fyrir félagið.
Heiða, sem er uppalin í Keflavík, gekk til liðs við Gróttu þegar meistaraflokkur kvenna var stofnaður árið 2016 og var fljótt gerð að fyrirliða. Heiða spilaði stórt hlutverk í uppgangi Gróttuliðsins og er í dag fjórða leikjahæsta kona félagsins.

„Fyrir utan framlag sitt innan vallar hefur Heiða alla tíð verið frábær liðsfélagi og nálgast öll verkefni af vinnusemi og virðingu við félagið,"

„Knattspyrnudeild Gróttu þakkar Heiðu kærlega fyrir samstarfið og óskar henni velfarnaðar í Breiðholtinu," segir í tilkynningu Gróttu sem leikur í Lengjudeildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.