Fotbolti.net
15.02.26 - 15:32
Brynjar Ingi Erluson
Kjarninn

Byrjunarlið Arsenal og Wigan: Lewis-Skelly á miðjunni

Lewis-Skelly er á miðjunni

Lewis-Skelly er á miðjunni

Canon

Mynd: EPA

Arsenal tekur á móti Wigan í 4. umferð ensku bikarkeppninnar á Emirates-leikvanginum klukkan 16:30 í dag.
Mikel Arteta gerir átta breytingar en er samt með ógnarsterkt byrjunarlið, en þar má finna þá William Saliba, Riccardo Calafiori, Noni Madueke, Gabriel Martinelli og Gabriel Jesus.

Myles Lewis-Skelly, sem var frábær á síðustu leiktíð, byrjar á miðjunni.

Christian Norgaard, Ben White, Cristhian Mosquera og Eberechi Eze eru einnig í liðinu og þá er Kepa Arrizabalaga í markinu.

Andstæðingur Arsenal-manna er Wigan sem er í 22. sæti C-deildarinnar en byrjunarlið beggja liða má sjá hér fyrir neðan.

Arsenal: Arrizabalaga, White, Saliba, Mosquera, Calafiori, Lewis-Skelly, Norgaard, Eze, Madueke, Martinelli, Jesus

Wigan: Tickle (M), Fox, Aimson, Kerr, Hunt, Murray, Weir, Moxon, Raphael, Wright, Taylor.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.