Jason Daði Svanþórsson og félagar hans í D-deildarliði Grimsby Town taka á móti Wolves klukkan 13:30 á Blundell Park í dag.
Mosfellingurinn er að vísu ekki með í leiknum vegna meiðsla, en það styttist í endurkomu hans. Hann lék síðast með Grimsby í nóvember á síðasta ári.
Ef Grimsby tekst það ótrúlega að vinna Wolves þá er ágætis möguleiki á að hann verði með í næstu umferð.
Úlfarnir gera þrjár breytingar. Sam Johnstone er í markinu í stað Jose Sá. Jackson Tchatchoua og David Moller Wolfe koma þá inn fyrir Rodrigo Gomes og Hugo Bueno.
Grimsby: Smith, Rodgers, Sweeney, McJanet, Burns, Warren, Turi, Khouri, Walker, Vernam, Kabia.
Wolves: Johnstone, Mosquera, S Bueno, Krejci, Tchatchoua, Mane, A Gomes, J Gomes, Wolfe, Arokodare, Armstrong.
Athugasemdir


