Liverpool í bílstjórasætinu um Gordon - Salah gæti farið í sumar - Arteta vill styrkja vörnina
banner
   sun 15. febrúar 2026 18:20
Ívan Guðjón Baldursson
Enski bikarinn: Auðvelt fyrir Arsenal
Eberechi Eze átti frábærar stoðsendingar í fyrstu tveimur mörkunum.
Eberechi Eze átti frábærar stoðsendingar í fyrstu tveimur mörkunum.
Mynd: EPA
Arsenal 4 - 0 Wigan
1-0 Noni Madueke ('11)
2-0 Gabriel Martinelli ('18)
3-0 Jack Hunt, sjálfsmark ('23)
4-0 Gabriel Jesus ('27)

Arsenal tók á móti Wigan Athletic sem leikur í League One deildinni og skóp auðveldan sigur í 32-liða úrslitum enska bikarsins í dag.

Noni Madueke og Gabriel Martinelli skoruðu fyrstu tvö mörk leiksins eftir magnaðar stoðsendingar frá Eberechi Eze. Madueke og Martinelli gerðu vel að klára færin sín og svo bættust fleiri mörk við.

Vængbakvörðurinn Jack Hunt skoraði sjálfsmark með skalla eftir stórhættulegt samspil Bukayo Saka og Madueke á hægri vængnum áður en Gabriel Jesus innsiglaði sigurinn eftir langa sendingu frá Christian Nörgaard.

Staðan var því orðin 4-0 eftir 27 mínútna leik en meira var ekki skorað. Wigan varðist vel í síðari hálfleik og gaf fá færi á sér svo Skyttunum tókst ekki að bæta fleiri mörkum við leikinn.
Athugasemdir
banner
banner