Parker gerði frábæra hluti með Burnley í fyrra en núna vill stór hluti stuðningsmanna sjá hann fjúka.
Scott Parker þjálfari Burnley gæti verið rekinn eftir vandræðalegt tap á heimavelli gegn Mansfield Town úr League One deildinni í enska bikarnum í gær.
Burnley stjórnaði ferðinni í fyrri hálfleik og náði forystunni en tókst ekki að bæta öðru marki við. Mansfield skoraði tvö mörk í jöfnum síðari hálfleik til að fara með afar óvæntan sigur af hólmi.
Parker gerði níu breytingar á byrjunarliði Burnley sem vann frábæran endurkomusigur á Crystal Palace í miðri viku og var gagnrýndur fyrir þá ákvörðun.
„Ég held ekki að þetta sé breytingunum að kenna, við áttum að vera búnir að klára leikinn í fyrri hálfleik. Við klúðruðum ótrúlegum færum og svo vorum við ömurlegir í seinni hálfleik. Þetta eru ömurleg úrslit fyrir okkur," sagði Parker eftir tapið.
„Við komum í þennan leik með sjálfstraust og ætluðum okkur að sigra. Þetta eru vonbrigði fyrir okkur. Það vantaði upp á herslumuninn á úrslitastundunum, það varð okkur að falli í dag."
Stuðningsmenn Burnley bauluðu innilega eftir tapið gegn Mansfield en Parker líður vel í starfinu. Burnley er í næstneðsta sæti úrvalsdeildarinnar, níu stigum frá öruggu sæti.
„Mér líður mjög vel í starfinu eins og er. Staðreyndin er sú að við töpuðum fótboltaleik gegn andstæðingum sem við áttum að sigra. Við fengum mörg færi til að vinna þennan leik en í fótbolta þá snýst þetta um úrslitin og ég skil að þetta eru neikvæð úrslit."
Athugasemdir



