Tómas Bent Magnússon kom inn af bekknum í toppslag skoska boltans í dag þar sem Hearts tapaði gegn Rangers.
Hearts náði forystunni í tvígang í fyrri hálfleik en vörnin hélt ekki nægilega vel svo heimamönnum tókst að jafna í bæði skiptin.
Youssef Chermiti, fyrrum leikmaður Everton, skoraði seinna jöfnunarmarkið og átti hann eftir að gera gæfumuninn í þessum slag. Hann bætti tveimur mörkum við í síðari hálfleik til að fullkomna þrennu og innsigla 4-2 sigur Rangers í leik þar sem ekki var mikið á milli liðanna.
Hearts er áfram á toppi deildarinnar en nú aðeins með tveggja stiga forystu eftir tvo tapleiki í síðustu þremur deildarleikjum. Rangers er í öðru sæti og fylgir Celtic, sem vann dramatískan endurkomusigur í dag, fast á eftir.
Skotlandsmeistararnir eru þremur stigum á eftir Hearts og eiga leik til góða.
Í gríska boltanum var Sverrir Ingi Ingason ekki í hóp hjá Panathinaikos sem gerði jafntefli gegn AEL Larissa. Davíð Kristján Ólafsson lék allan leikinn í liði gestanna sem sýndu flotta frammistöðu.
Larissa tók forystuna í síðari hálfleik en Panathinaikos náði að jafna svo lokatölur urðu 1-1 í tíðindalitlum slag. Panathinaikos þjarmaði að marki gestanna á lokamínútunum og kom boltanum í netið en eftir athugun var ekki dæmt mark vegna rangstöðu.
Panathinaikos er í fimmta sæti eftir jafnteflið, með 33 stig úr 20 umferðum. Larissa er í fallbaráttu með 20 stig.
Sparta Rotterdam og NEC Nijmegen áttu þá að mætast í efstu deild í Hollandi en fresta þurfti leiknum vegna mikillar snjókomu. Willum Þór Willumsson var skráður byrjunarliðsmaður í liði Nijmegen sem er í óvæntri baráttu um meistaradeildarsæti.
Í Póllandi vann Lech Poznan þægilegan sigur á heimavelli og er liðið aðeins fjórum stigum á eftir toppsætinu. Gísli Gottskálk Þórðarson var ónotaður varamaður hjá heimamönnum.
Þá fóru nokkrir æfingaleikir fram hjá Íslendingaliðum. Ólafur Guðmundsson var í byrjunarliði Álasunds sem tapaði gegn Sirius en Davíð Snær Jóhannsson byrjaði á bekknum.
Á sama tíma var Hrannar Snær Magnússon í byrjunarliði Kristiansund í jafnteflisleik gegn Egersund. Júlíus Mar Júlíusson byrjaði á bekknum.
Að lokum töpuðu Kolbeinn Þórðarson og félagar í liði Gautaborgar gegn BK Häcken.
Rangers 4 - 2 Hearts
0-1 Marc Leonardo ('16)
1-1 Michael Steinwender, sjálfsmark ('19)
1-2 Claudio Braga ('30)
2-2 Youssef Chermiti ('39)
3-2 Youssef Chermiti ('57)
4-2 Youssef Chermiti ('90)
Panathinaikos 0 - 0 AEL Larissa
Lech Poznan 3 - 0 Piast Gliwice
Sirius 3 - 2 Aalesund
Kristiansund 1 - 1 Egersund
Hacken 2 - 1 Göteborg
Athugasemdir




