Michael Carrick, bráðabirgðastjóri Manchester United, var ánægður með viðbrögð sinna manna í 3-1 sigrinum á Aston Villa á Old Trafford í dag.
Man Utd tapaði síðasta leik gegn Newcastle og vildi Carrick fá svar frá strákunum.
Hann svo sannarlega fékk það. Bruno Fernandes átti tvær frábærar stoðsendingar á Casemiro og Matheus Cunha og þá gerði Benjamin Sesko út um leikinn undir lokin.
„Tilfinningin er góð. Frammistaðan var að mestu mjög góð og við gerðum margt í leiknum sem við vorum ánægðir með og frábært að ná að klára þetta á þennan hátt. Við vissum að þetta yrði mikilvægur leikur og við náðum að komast aftur á sigurbraut. Strákarnir brugðust frábærlega við
„Ég var ánægður með stöðuna í hálfleik. Það var mjótt á mununum og stundum þarf maður að vera svolítið yfirvegaður. Leikurinn opnaðist aðeins í seinni en við vorum með leikmenn sem náðu að skipta sköpum,“ sagði Carrick.
Fernandes skrifaði nafn sitt í sögubækurnar en hann tók stoðsendingamet David Beckham yfir heilt tímabil. Hann er nú kominn með sextán stoðsendingar í deildinni, en Portúgalinn hefur reynst United frábær síðan hann kom frá Sporting fyrir sex árum.
„Hann hefur átt svo mörg stór augnablik, hvort sem hann skorar eða sendir boltann. Hann er alltaf þarna. Bruno tekur alltaf frumkvæði, hvort sem það er á æfingasvæðinu eða í leikjum.“
„Sendingin á Matheus var frábær og kórónaði það í raun frábæra frammistöðu hans,“ sagði Carrick sem var ánægður með samvinnu þeirra Fernandes og Casemiro á miðsvæðinu.
„Það er góður skilningur á milli Case og Bruno. Það er hægt að þjálfa suma hluti, en stundum leyfir maður þeim bara að finna svæðin. Jonny (Evans) hefur unnið mikið með þeim í föstu leikatriðunum og gefið þeim leiðsögn, en samvinna þeirra er fremur augljós því þeir hafa gert þetta svo oft áður. Þetta var frábær bolti og laglegur skalli hjá Case,“ sagði Carrick.
Athugasemdir


