Stórlið berjast um Wharton - Liverpool og Man Utd á eftir leikmanni Leipzig - Real Madrid hlustar á tilboð í Camavinga
   sun 15. mars 2026 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fernandes bætti met Beckham
Mynd: EPA
Bruno Fernandes, fyrirliði Man Utd, lagði upp tvö mörk í 3-1 sigri liðsins gegn Aston Villa í dag.

Hann hefur lagt upp 16 mörk á tímabilinu en hann bætti þar með met David Beckham sem lagði upp 15 mörk í treyju Man Utd tímabilið 1999/2000.

„Ég er meira stoltur því ég gerði þetta með því að þjóna samherjunum mínum. Það er betra því ég gef öðrum ánægju sem er mjög gott þegar þú spilar í þessari stöðu sem ég geri," sagði Fernandes.

„Ég er ánægður að hjálpa þeim að skora og upplifa þessi augnablik. Þetta er auðvitað risastórt afrek fyrir mig en aðalmarkmiðið er að vera í toppsætunum í lok tímabils."
Athugasemdir
banner
banner