15.05.15 - 17:30
Magnús Már Einarsson
Ágúst Örn, Brynjar Víðis og Jón Björgvin í Augnablik (Staðfest)

Ágúst Örn Arnarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágúst Örn Arnarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Augnablik í 4. deildinni hefur fengið liðsstyrk en fimm leikmenn hafa komið til félagsins í dag.
Framherjinn Ágúst Örn Arnarson kemur frá Fjölni en hann skoraði eitt mark í Pepsi-deildinni í fyrra. Ágúst er uppalinn hjá Breiðabliki en hann hefur einnig leikið með Fjarðabyggð á ferli sínum.

Miðjumaðurinn reyndi Brynjar Víðisson kemur frá HK en hann hefur ekkert spilað síðan hann meiddist illa árið 2013.
Brynjar stimplaði sig inn í lið Augnabliks með því að skora sigurmarkið í 4-3 sigri á Árborg í æfingaleik í vikunni.
Miðjumaðurinn Jón Björgvin Hermannsson er einnig kominn í Augnablik en hann á leiki í efstu deild með Fylki, Víkingi og HK.
Þá hefur Augnablik fengið Björn Þórsson Björnsson frá Ými, Hörð Gunnarsson úr Vængjum Júpíters og miðjumanninn Steinar Loga Rúnarsson frá Dalvík/Reyni.

Brynjar Víðisson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jón Björgvin Hermannsson.

Mynd: Fótbolti.net - Gunnlaugur Júlíusson