15.05.15 - 14:30
Magnús Már Einarsson
Albani, Davíð Steinn og Gunnar Patrik í KV (Staðfest)

Davíð Steinn Sigurðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Steinn Sigurðarson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnufélag Vesturbæjar hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.
Esanviol Latsis Or Laci hefur fengið leikheimild með liðinu. Laci er 26 ára gamall Albani en hann spilaði síðast í Grikklandi.
Davíð Steinn Sigurðarson er einnig kominn aftur í Vesturbæinn frá Víkingi R. Hinn 22 ára gamli Davíð þekkir mjög vel til hjá KV því hann hefur leikið með liðinu síðustu þrjú tímabil.
Davíð getur spilað bæði í vörn og á miðju en í fyrra skoraði hann eitt mark í tuttugu leikjum í 1. deildinni.
Gunnar Patrik Sigurðsson er einnig kominn til KV frá Val en hann er fæddur árið 1995.
Möguleiki er á að KV fái meiri liðsstyrk áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti.
KV fær Ægi í heimsókn í 2. deildinni í kvöld en Davíð og Gunnar geta spilað þann leik. Laci fær hins vegar ekki leikheimild fyrr en á morgun.