15.05.15 - 11:00
Magnús Már Einarsson
Alexander Már og Jordan Chase Tyler í KF (Staðfest)

Alexander Már Þorláksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Alexander Már Þorláksson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar hefur fengið góðan liðsstyrk fyrir átökin í 2. deildinni í sumar.
Framherjinn Alexander Már Þorláksson er kominn á láni til félagsins frá Fram en hann skoraði eitt mark í þrettán leikjum í Pepsi-deildinni í fyrra.
Alexander skoraði einnig fjögur mörk í þremur leikjum í Borgunarbikarnum með Fram.
KF hefur einnig fengið framherjann Jordan Chase Tyler í sínar raðir en hann kemur frá Kanada.
Í gær fékk serbneski varnarmaðurinn Milan Marinkovic einnig leikheimild með KF.
KF tapaði fyrir ÍR í fyrstu umferðinni í 2. deildinni en liðið mætir Aftureldingu á morgun.