Fotbolti.net
15.05.15 - 16:26
Magnús Már Einarsson

Auddi Blö í Vængi Júpíters (Staðfest)

Auðunn Blöndal.

Auðunn Blöndal.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Sjónvarpsmaðurinn góðkunni Auðunn Blöndal hefur gengið til liðs við Vængi Júpíters í 4. deildinni.

Auðunn hefur undanfarin tvö tímabil spilað með Létti í 4. deildinni.
Í fyrra skoraði hann eitt mark í þremur leikjum með Létti áður en hann ákvað að leggja skóna á hilluna eftir að hafa fengið rauða spjaldið í leik gegn Skallagrími.

Auðunn hefur nú ákveðið að rífa skóna fram á nýjan leik en hann hefur fengið félagaskipti í Vængi Júpíters.

Vængir Júpíters eru að safna liðið fyrir sumarið en Egill Gautur Steingrímsson, Olgeir Óskarsson og tvíburarnir Geir og Kolbeinn Kristinssynir hafa allir gengið til liðs við félagið.

Leikmennirnir fjórir spiluðu allir með Fjölni í 1. deildinni á sínum tíma.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.