15.05.15 - 17:01
Magnús Már Einarsson
Dagný Brynjarsdóttir í Selfoss (Staðfest)
Gekk ekki að fara til Bandaríkjanna

Dagný í leik með Selfyssingum í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagný í leik með Selfyssingum í fyrra.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Selfoss hefur fengið gífurlgan liðsstyrk fyrir baráttuna í Pepsi-deild kvenna í sumar en landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir er komin til félagsins. Sunnlenska.is greinir frá þessu.
Dagný spilaði með Selfyssingum í fyrra og mun taka slaginn áfram með liðinu í sumar, að minnsta kosti þangað til í júlí.

Dagný varð þýskur meistari með FC Bayern um síðustu helgi en hún ákvað að framlengja ekki samning sinn þar. Dagný hafði komist að samkomulagi við lið í bandarísku atvinnumannadeildinni og var á leiðinni út til að skrifa undir.
Í gærkvöldi kom hins vegar í ljós að ekkert yrði af því að hún gengi til liðs við bandaríska liðið vegna óánægju annarra liða í deildinni. Leikmenn í Bandaríkjunum þurfa að fara í gegnum svokallað leikmannaval og þegar fréttist að Dagný væri á leið til Bandaríkjanna kvörtuðu önnur lið í deildinni yfir því að Dagný færi ekki í gegnum formlegt valferli.
„Þeir sem eru yfir deildinni buðu mér að fara í gegnum lotterí, þar sem liðið í níunda sæti fengi níu kúlur í pottinum, liðið í áttunda sæti átta kúlur og svo framvegis. Svo yrði dregið um það í hvaða lið ég færi og ég þyrfti að vera þar í eitt og hálft ár. Ég var ekki tilbúin í það því ég vildi vita í hvaða lið ég væri að fara,\" sagði Dagný í samtali við sunnlenska.is en hún hætti í kjölfarið við að fara til Bandaríkjanna.
„Þegar ég fór til Bayern þá renndi ég blint í sjóinn, vissi að ég væri að fara í stóran klúbb en vissi svosem ekki meira. Ég var ekki tilbúin að fara til Bandaríkjanna í eitthvað lið þar sem ég þekkti ekki metnað þjálfarans eða hvernig aðstaðan væri.\"
„Þetta kom í ljós klukkan tíu í gærkvöldi og ég svaf ekkert í nótt. Ég var búin að segja nei við öll liðin á Íslandi, í Þýskalandi og eitt lið í Svíþjóð. Ég hringdi í Gunna [Selfossþjálfara] í gærkvöldi og spurði hvort ég mætti koma í Selfoss því mig langaði til þess að spila fótbolta. Ég er ennþá atvinnumaður þó að ég sé hérna, ég veit ekki hvert næsta skref verður, hvort ég fer út í júlíglugganum eða á næsta ári. En ég var að minnsta kosti ekki tilbúin til þess að spila ekkert þangað til 15. júlí.\"
„Ég veit að hverju ég geng á Selfossi, þetta er einn af toppklúbbunum á Íslandi með toppstelpum og frábærri aðstöðu og Gunni er toppþjálfari og hvernig hugsað er um liðið er frábært. Svo verður bara að koma í ljós seinna í sumar hvort ég fer eitthvað annað í júlíglugganum.\"
Selfyssingum er spáð 3. sæti í Pepsi-deild kvenna í sumar en liðið tapaði 2-0 gegn Fylki í fyrstu umferðinni í gær.
„Okkur er spáð 3. sæti og ég er komin hingað til þess að sjá til þess að við verðum ofar en í 3. sæti. Ég sat í stúkunni á Fylkisvellinum í gær og það var rosalega erfitt, en þá vissi ég ekkert að ég væri að fara að spila með Selfoss. Þetta er í fyrsta sinn sem ég er á Íslandi og ekki að spila í Pepsi. Ég hefði alveg verið til í að reima á mig skóna í hálfleik og hjálpa þeim eitthvað,\" sagði Dagný létt að lokum við Sunnlenska.is.

Heimild: Sunnlenska.is

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð