15.05.15 - 15:46
Elvar Geir Magnússon
Farid Zato í Kára (Staðfest)

Farid er kominn í Kára.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Farid er kominn í Kára.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gríðarlega óvænt félagaskipti voru að detta í hús en miðjumaðurinn Farid Zato hefur fengið félagaskipti frá KR yfir í 3. deildarliðið Kára á Akranesi. Sigurður Jónsson er þjálfari Káramanna.
Farid er landsliðsmiðjumaður Tógó en hann kom til KR fyrir síðasta tímabil eftir að verið nálægt því að ganga í raðir Þórs. Hann varð bikarmeistari með KR í fyrra.
Farid er 23 ára gamall en hann hefur einnig verið á mála hjá FH, HK og Víkingi Ólafsvík á ferli sínum.
Sigurður Jónsson, þjálfari Kára, verður í viðtali sem birtist hér á síðunni eftir nokkrar mínútur en þar segir Sigurður að Farid muni verða hjá liðinu þar til glugginn opnar í júli en Farid fótbrotnaði fyrr á árinu og er að jafna sig af þeim meiðslum.
Sjá einnig:
Siggi Jóns um Farid: Æfingabúðir í paradísinni á Akranesi