Fotbolti.net
15.05.15 - 16:47
Magnús Már Einarsson

Gunnar Helgi í Fram (Staðfest)

Gunnar Helgi Steindórsson.

Gunnar Helgi Steindórsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fram hefur fengið sóknarmanninn Gunnar Helga Steindórsson til liðs við sig.

Gunnar Helgi er fæddur árið 1991 en hann er uppalinn hjá Víkingi Reykjavík.
Gunnar spilaði með Víkingi í Pepsi-deildinni og 1. deildinni áður en hann gekk í raðir KV fyrir síðasta tímabil.

Gunnar spilaði ellefu leiki með KV í fyrra og skoraði eitt mark áður en hann fór til Bandaríkjanna í nám.

Fram heimsækir Þór á morgun og Gunnar gæti spilað sinn fyrsta leik í bláuu þar.

Fram var einnig á Akureyri um síðustu helgi en liðið gerði þá 3-3 jafntefli við KA í 1. umferðinni í 1. deildinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.