Fotbolti.net
15.05.15 - 23:37
Elvar Geir Magnússon

Hafþór Ægir, Halldór Hilmis og fleiri í Þrótt Vogum (Staðfest)

Hafþór Ægir Vilhjálmsson er kominn í Þrótt Vogum.

Hafþór Ægir Vilhjálmsson er kominn í Þrótt Vogum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Það hefur verið nóg að gera á skrifstofunni hjá Þrótti Vogum í kvöld. Þróttarar voru nálægt því að komast upp úr 4. deildinni í fyrra og stíga nú á bensíngjöfina með Andra Stein Birgisson sem þjálfara.
Á lokadegi félagaskiptagluggans hafa Þróttarar fengið til sín nokkur þekkt nöfn.

Sóknarleikmaðurinn Hafþór Ægir Vilhjálmsson er kominn til liðsins en Hafþór lék síðast með uppeldisfélaginu ÍA í Pepsi-deildinni 2013. Einnig hefur hann leikið fyrir Grindavík.

Reynsluboltinn Halldór Hilmisson er einnig mættur en hann lék með Gróttu í 2. deildinni í fyrra. Halldór er 38 ára miðjumaður og lék lengi með Þrótti Reykjavík en einnig með Val og Fylki.

Tveir markverðir eru komnir með leikheimild með Þrótti en það eru Ögmundur Ólafsson, fyrrum markvörður Þróttar og HK, og Árni Ásbjarnarson sem kemur á láni frá Haukum en hann lék með ÍH fyrir tveimur árum.

Þá kemur Páll Magnús Pálsson á láni frá Val en hann lék með meistaraflokki Vals á undirbúningstímabilinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.