Fotbolti.net
15.05.15 - 13:15
Magnús Már Einarsson

María Rós í Selfoss (Staðfest)

María Rós í Selfoss (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
María Rós Arngrímsdóttir hefur gengið til liðs við Selfoss en hún kemur til félagsins frá Breiðabliki.

María hefur verið á mála hjá Blikum síðan árið 2011 en í fyrra spilaði hún 14 leiki í Pepsi-deildinni.

Á ferli sínum hefur María einnig leikið mðe Val, Grindavík og Aftureldingu.
María er fædd árið 1990 en hún hóf meistaraflokksferil sinn með Val árið 2006.

Selfoss tapaði 2-0 gegn Fylki í fyrstu umferðinni í Pepsi-deild kvenna í gærkvöldi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.