15.05.15 - 13:53
Elvar Geir Magnússon
Matthías Guðmunds fær leikheimild með Val (Staðfest)
Bjarni Ólafur er ekki á förum

Matthías Guðmundsson á fjölmarga leiki fyrir Val.

Mynd: Fótbolti.net - Torfi Jóhannsson

Matthías Guðmundsson hefur æft með meistaraflokki Vals síðustu sex vikurnar og hefur hann nú fengið leikheimild með liðinu.
Sigurbjörn Hreiðarsson, aðstoðarþjálfari Vals, segir að vilji hafi verið fyrir því að fá félagaskipti fyrir Matthías með þeim möguleika að hann gæti leikið með liðinu ef á þyrfti að halda.
Matthías er 34 ára og hefur í vetur spilað með 4. deildarliði KH sem að mestu er skipað Valsmönnum.
Matthías var spilandi aðstoðarþjálfari Hauka á síðasta tímabili þar sem hann lék 16 leiki og skoraði eitt mark í fyrstu deildinni. Hann á langan feril að baki þar sem hann ólst upp hjá Val og lék þar frá 1999 til 2006, þegar hann fór í FH. Hjá FH varð Matthías Íslandsmeistari árið 2008 en fór aftur yfir til Vals um mitt sumar árið 2009.
Sigurbjörn segir að varnarmaðurinn Bjarni Ólafur Eiríksson sé ekki á förum frá Val en í Fréttablaðinu í morgun var sagt að KR vilji fá Bjarna og hafi boðið Þorstein Má Ragnarsson í skiptum.
„Það er ekkert í gangi. Það var bara í fyrsta sinn sem ég heyrði af þessu þegar ég sá þetta í Fréttablaðinu í morgun,\" segir Sigurbjörn en hann segir að Bjarni sé ekki á förum frá Val.
Valur er með eitt stig að loknum tveimur umferðum í Pepsi-deild karla.