Fotbolti.net
15.05.15 - 23:09
Arnar Geir Halldórsson

Ósvald Jarl í Gróttu (Staðfest)

Ósvald leikur með Gróttu í sumar

Ósvald leikur með Gróttu í sumar

Canon

Mynd: Breiðablik

Ósvald Jarl Traustason er genginn til liðs við 1. deildarlið Gróttu á láni frá Breiðabliki.
Ósvald er uppalinn Bliki en hann kom aftur til félagsins í vetur eftir eins árs dvöl hjá Fram þar sem hann spilaði 15 leiki í Pepsi deildinni í fyrra.

Ósvald spilar alla jafnan í stöðu vinstri bakvarðar en hjá Breiðablik leikur Kristinn Jónsson í þeirri stöðu.

Grótta eru nýliðar í 1. deildinni og ljóst að þarna er um mikinn liðsstyrk að ræða en Ósvald gæti spilað sinn fyrsta leik fyrir Gróttu á morgun þegar liðið fær Víking Ólafsvík í heimsókn.

Ósvald hefur áður leikið í 1. deildinni en hann var lánaður til Leiknis sumarið 2013.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.