15.05.15 - 11:04
Elvar Geir Magnússon
Sóknarmaðurinn Sead Gavranovic í ÍBV (Staðfest)

Sead Gavranovic.

Mynd: Jammerbugt FC

Sead Gavranovic.

Mynd: Jammerbugt FC
Danski sóknarmaðurinn Sead Gavranovic hefur gengið í raðir ÍBV og er kominn með leikheimild með liðinu.
Um er að ræða 23 ára leikmann sem fæddur er í Bosníu og er 1,84 metrar á hæð.
Hans aðalstaða er sem fremsti sóknarmaður en einnig getur hann leikið í holunni fyrir aftan fremsta mann.
Gavranovic lék síðast með Jammerbugt FC í dönsku 2. deildinni en samkvæmt tilkynningu frá ÍBV skoraði hann 8 mörk á síðasta tímabili og sendi 10 stoðsendingar í 23 leikjum.
Eyjamenn eru án stiga eftir fyrstu tvær umferðirnar í Pepsi-deildinni en þeir mæta Fylki á sunnudag.