15.06.15 - 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rodrigo til Valencia (Staðfest)

Rodrigo mun leika áfram í búningi Valencia

Mynd: Getty Images

Spænska úrvalsdeildarliðið Valencia er búið að ganga frá kaupum á framherjanum Rodrigo frá Benfica.
Hinn 24 ára gamli Rodrigo mun skrifa undir fjögurra ára samning, en kaupverðið er ekki gefið upp.

Rodrigo var í láni hjá Valencia á síðasta tímabili og lék hann 31 leik og skoraði í þeim þrjú mörk. Hann mun núna ganga endanlega í raðir liðsins.
„Ég er mjög ánægður að vera endanlega genginn í raðir Valencia. Ég vil hjálpa Valencia að verða betra lið og með hjálp stuðningsmannanna getum við náð góðum árangri,“ sagði Rodrigo.
Þetta eru önnur kaup Valencia í sumar, en þeir höfðu áður fest kaup á miðjumanninum Andre Gomes, sem var einnig í láni hjá félaginu frá Benfica.

Heimild: Valencia