Á þá leiki Pepsi Max deildar karla sem fram hafa farið á yfirstandandi knattspyrnusumri hafa alls mætt 33.929 áhorfendur, eða 1.028 að meðaltali á hvern leik. Alls eru 8 lið af 12 í deildinni með yfir eitt þúsund áhorfendur að meðaltali á sínum heimaleikjum en Grótta, Fjölnir, KA og ÍA ná því ekki.
Flestir áhorfendur að meðaltali sækja leiki Breiðabliks á Kópavogsvellinum, eða 1.644, og ef meðalaðsókn á útileiki liða er skoðuð má sjá að flestir mæta einnig á útileiki Breiðabliks, eða 1.535.
KR-ingar fylgja Blikum fast á eftir í báðum flokkum. Best sótti leikurinn hingað til er einmitt viðureign þessara tveggja liða á Meistaravöllum í fyrrakvöld, þar sem áhorfendur voru 2.352 talsins.
Tveir leikir hingað til hafa farið yfir tvö þúsund í áhorfendafjölda - fyrrgreindur leikur KR og Breiðabliks, og svo heimaleikur Breiðabliks gegn nýliðum Gróttu, en 2.114 áhorfendur sóttu þann leik.
Smellið hér til að skoða tölfræðina nánar.
Athugasemdir