Fotbolti.net
15.07.26 - 21:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arnar tók sér tveggja mínútna hlé sem landsliðsþjálfari til að gagnrýna England

Arnar tók sér tveggja mínútna hlé sem landsliðsþjálfari til að gagnrýna England
Canon

Mynd: EPA

„Mig langar að byrja að segja af mér sem landsliðsþjálfari í tvær mínútur. Mig langar að tala sem stuðningsmaður fótboltans," sagði Arnar Gunnlaugsson, landsliðsþjálfari Íslands, í HM kvöldi á RÚV eftir tap Englands gegn Argentínu í undanúrslitum á HM í kvöld.
HM: Fótboltinn kemur ekki heim eftir dramatíska endurkomu Argentínu
TENGT EFNI

HM: Fótboltinn kemur ekki heim eftir dramatíska endurkomu Argentínu

Thomas Tuchel hefur fengið mikið hrós fyrir góðar skiptingar á mótinu. Það klikkaði hins vegar í kvöld. Hann tók markaskorarann Anthony Gordon af velli fyrir Ezri Konsa á 72. mínútu. Tíu mínútum síðar gerði hann tvær varnarskiptingar í viðbót og Argentína skoraði tvö mörk í kjölfarið og tryggði sér sigur.

„Mér fannst frammistaða Englands til skammar eftir að þeir skora. Lið númer fjögur á heimslistanum að bakka í lágvörn og vera þar eins og gínur. Það er eitt að vera í lágvörn og annað að vera í lágvörn með ákefð. Argentínumenn gengu á lagið og það var orrahríð að marki Englands. Ég er stuðningsmaður Englands en ég fagnaði þegar Argentína skoraði."

„Ég er svo mikill stuðningsmaður fótboltans. Maður vill ekki sjá svona frammistöðu hjá toppþjóðum. Þeir svíkja sjálfan sig hálfpartinn. Liðið sem var eftir þegar Argentína gerði annað markið var aldrei líklegt. Þeir sviku allt sem þeir stóðu fyrir fyrir mót."

Argentína mætir Spáni í úrslitum á sunnudaginn og getur varið heimsmeistaratitilinn. England mætir Frakklandi í leiknum um þriðja sætið á laugardaginn.

„Ég er glaður fyrir hönd Argentínu. Bæði lið sem eru komin í úrslitaleikinn eiga eitt sameiginlegt að boltinn er vinur þeirra hjá öllum leikmönnum. Þeir passa upp á að hann fái að njóta sín."
Arnar tók sér tveggja mínútna hlé sem landsliðsþjálfari til að gagnrýna England
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.