Fotbolti.net
15.07.26 - 22:07
Snæbjört Pálsdóttir

Líf með mark og stoðsendingu: „Það stoppar okkur ekkert“

Auglýsing
Líf Joostdóttir skoraði eitt mark og lagði annað upp í 4-1 sigri Breiðabliks á Víkingi.

Líf Joostdóttir skoraði eitt mark og lagði annað upp í 4-1 sigri Breiðabliks á Víkingi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

Líf Joostdóttir van Bemmel átti góðan leik fyrir Breiðablik þegar liðið vann 4-1 sigur á Víkingi í Bestu deild kvenna í kvöld. Leikurinn var lengi markalaus en Blikar skoruðu fjögur mörk á lokakaflanum og tryggðu sér mikilvæg þrjú stig.

„Tilfinningin er bara mjög góð. Við vorum þolinmóðar og þetta datt inn á endanum. Við vorum með góðan varnarleik og þetta var alltaf að fara að koma,“ sagði Líf í samtali við Fótbolta.net eftir leik.


Lestu um leikinn: Breiðablik 4 - 1 Víkingur R.

Líf lagði upp fyrsta mark Breiðabliks með frábærri sendingu og skoraði síðan sjálf annað mark liðsins.

„Það er bara æðislegt að spila í þessu liði. Okkur gengur mjög vel. Við höfum lent í smá erfiðleikum núna en það stoppar okkur ekkert. Mér líður bara mjög vel hérna.“


Líf er nýkomin heim af Evrópumóti U19 ára landsliða en Ísland tók þar þátt í lokakeppninni.

„Upplifunin var geggjuð. Við erum með geggjað lið í U19 ára landsliðinu. Okkur hefði getað gengið betur en það er eins og það er. Þetta var geggjuð upplifun og geggjuð reynsla.“


Breiðablik hefur gefið ungum leikmönnum tækifæri í sumar og einn þeirra komst á blað gegn Víkingi, hin 14 ára Ólöf Margrét Marvinsdóttir. Líf segir ungu leikmennina hafa komið vel inn í hópinn.

„Stemningin er bara mjög góð. Þessar stelpur eru mjög góðar. Við erum með nokkrar þeirra á bekknum og þær koma með okkur á æfingar. Það er verið að rótera þeim inn.“

„Þetta eru bara frábærar stelpur og þær eiga bjarta framtíð.“


Sigurinn var mikilvægur fyrir Blika í toppbaráttunni en liðið heldur áfram að elta FH. Líf segir markmiðið vera skýrt.

„Auðvitað stefnum við á titil. Það er alltaf stefnt á titil.“

„Við þurfum bara að halda stemningunni innan liðsins. Þetta kemur allt á endanum. Við erum með góða liðsheild og þetta klárast.“ Sagði Líf að lokum áður en hún fékk væna vatnsgusu yfir sig frá DJ Guggu sem beið spennt eftir því að fá að hrekkja hana aðeins. 

Sjáðu viðtalið og vatnsgusuna í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.