Fram 2 - 0 Njarðvík
1-0 Fred Saraiva ('79)
2-0 Helgi Guðjónsson ('96)
1-0 Fred Saraiva ('79)
2-0 Helgi Guðjónsson ('96)
Fram tók á móti Njarðvík í fyrsta leik 17. umferðar Inkasso-deildarinnar og var staðan markalaus eftir tíðindalítinn fyrri hálfleik.
Heimamenn í Fram voru betri en vantaði gæðin á síðasta vallarþriðjungnum. Allt þar til á 79. mínútu þegar Fred Saraiva skoraði eftir skelfileg varnarmistök gestanna. Atli Geir Gunnarsson náði þá ekki að hreinsa boltann, sem skoppaði til Fred í dauðafæri.
Njarðvíkingar reyndu að svara fyrir sig en það gekk ekki og innsiglaði Helgi Guðjónsson sigur Framara undir lok uppbótartímans.
Fram er í 5. sæti eftir sigurinn, 5 stigum frá toppbaráttunni. Öll önnur lið eiga þó leik til góða. Njarðvík vermir botnsætið, þremur stigum frá öruggu sæti.
Það tekur tíma fyrir stöðutöfluna að uppfærast.
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir