Philippe Coutinho kom inn af bekknum og skoraði tvennu, auk þess að leggja eitt upp, í 8-2 sigri FC Bayern gegn Barcelona í Meistaradeildinni í gærkvöldi.
Coutinho er hjá Bayern að láni frá Barca eftir að hafa mistekist að standast væntingar hjá Börsungum, þar sem hann er dýrasti leikmaður í sögu félagsins.
Barca keypti Coutinho frá Liverpool fyrir tveimur og hálfu ári síðan og borgaði um 140 milljónir punda fyrir auk árangurstengdra aukagreiðslna.
Ein slík greiðsla hljóðar uppá 4,5 milljónir punda - ef Coutinho vinnur Meistaradeildina. Mirror er meðal miðla sem greina frá því að hvergi er tekið fram að Coutinho þurfi að vinna keppnina með Barca.
Bayern er talið sigurstranglegasta lið keppninnar í ár og mætir annað hvort Manchester City eða Lyon í undanúrslitum.
Athugasemdir