15.08.26 - 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mudryk: Hef verið á undirbúningstímabili í 18 mánuði

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Mykhailo Mudryk er kominn aftur út á völl eftir 20 mánaða fjarveru. Hann var dæmdur í fjögurra ára keppnisbann eftir að hafa fallið á lyfjaprófi en það var fellt úr gildi nýlega.
Mudryk spilaði sinn fyrsta leik fyrir tíu dögum og hefur komið við sögu í þremur leikjum á undirbúningstímabilinu hjá Chelsea.

„Ég er auðvitað mjög ánægður. Það er langt síðan síðast svo að standa á æfingasvæðinu er mjög ánægjulegt augnablik fyrir mig," sagði Mudryk.
„Ég er þakklátur að vera kominn aftur út á völl. Það var góð tilfinning að sjá alla aftur. Ég fékk hlýjar móttökur."
Mudryk hefur æft vel allan þann tíma sem hann hefur verið fjarverandi.
„Ég myndi segja að þetta hafi verið eins og að vera á undirbúningstímabili í 18 mánuði. Ég hef æft mjög vel. Ég gafst aldrei upp og reyndi að leggja eins hart að mér og ég mögulega gat. Ég vann sex daga vikunnar með almennilegri endurheimt, svefn, matarræði, allt. Þetta var allt eins, bara tvöfallt á hverjum degi," sagði Mudryk.
„Ég ætlaði að koma aftur og sýna mig fyrir fótboltaheiminum. Það var mitt verkefni og ég vissi hvað ég þurfti að gera. Þú nærð þessu bara með því að leggja hart að þér."