Fotbolti.net
Spáin fyrir enska - 9. sæti

14.08.26

Spáin fyrir enska - 9. sæti

GUÐMUNDUR AÐALSTEINN ÁSGEIRSSON

Við höldum áfram að hita upp fyrir ensku úrvalsdeildina með sérstakri spá fréttafólks síðunnar fyrir tímabilið. Við erum komin í efri hlutann en Bournemouth er spáð níunda sætinu.
Bournemouth heldur áfram að skrifa eina merkilegustu sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Eftir að hafa tryggt sér Evrópusæti í fyrsta sinn í sögu félagsins stendur liðið nú frammi fyrir þeirri áskorun að samræma leik í ensku úrvalsdeildinni og Evrópukeppni. Það eitt undirstrikar hversu langt Bournemouth hefur náð á undanförnum árum.

Stærsta breytingin í sumar er þó brotthvarf Andoni Iraola, sem stýrði félaginu í gegnum farsælasta tímabil þess frá upphafi. Í hans stað er kominn Marco Rose, sem kemur með mikla reynslu úr þýska boltanum og Meistaradeildinni. Innan félagsins ríkir trú á að sterkur grunnur síðustu ára geri Bournemouth kleift að halda áfram á sömu braut þrátt fyrir stjóraskiptin.

Verkefnið verður þó krefjandi. Evrópuleikir á fimmtudögum kalla á breiðari leikmannahóp og skynsama leikmannastjórnun, sérstaklega eftir að nokkrir lykilmenn hafa yfirgefið félagið. Á sama tíma heldur félagið áfram að vaxa utan vallar, meðal annars með áformum um stækkun Vitality Stadium. Bournemouth er enn eitt minnsta félag deildarinnar miðað við stærð og fjárhag, en metnaðurinn hefur aldrei verið meiri. Markmiðið er ekki lengur bara að halda sér uppi, heldur að festa sig í sessi sem eitt framsæknasta félag ensku úrvalsdeildarinnar.

Stjórinn: Marco Rose tekur við erfiðu verkefni eftir brotthvarf Andoni Iraola, sem skilaði Bournemouth besta tímabili í sögu félagsins. Þjóðverjinn kemur þó með afar sterkan feril að baki eftir að hafa stýrt liðum á borð við Borussia Dortmund og RB Leipzig í Meistaradeild Evrópu. Rose er þekktur fyrir áræðinn og orkumikinn leikstíl, mikla pressu og hæfileika til að þróa unga leikmenn, sem passar vel við þá stefnu sem Bournemouth hefur mótað á undanförnum árum. Stærsta verkefni hans verður að halda uppi þeirri jákvæðu þróun sem félagið hefur verið á.
Spáin fyrir enska - 9. sæti

Mynd: EPA

Leikmannaglugginn: Bournemouth er eitt sniðugasta félag ensku úrvalsdeildarinnar á leikmannamarkaðnum og hefur hingað til í sumar fjárfest í tveimur mjög áhugaverðum leikmönnum.

Komnir:
António Silva frá Benfica - 21,4 milljónir punda
Álvaro Rodríguez frá Elche - 21,3 milljónir punda

Farnir:
Luis Sinisterra til Cruzeiro - 5,2 milljónir punda
Álex Jiménez til Fiorentina - Á láni
Romain Faivre til Auxerre - Á láni
Marcos Senesi til Tottenham - Á frjálsri sölu

Líklegt byrjunarlið
Mynd: FotMob
Spáin fyrir enska - 9. sæti

Mynd: EPA

Lykilmaður: Alex Scott
Hann er talinn einn hæfileikaríkasti enski miðjumaður sinnar kynslóðar og verður lykilmaður í nýju Bournemouth-liði Marco Rose. Þessi 22 ára gamli leikmaður hefur lengi verið talinn framtíðarmaður hjá enska landsliðinu og áhugi stærri félaga hefur farið vaxandi eftir öfluga frammistöðu á síðasta tímabili. Scott er með frábæran leikskilning, mikla vinnusemi og hæfileikann til að brjóta upp varnir með sendingum og hlaupum frá miðjunni. Hann hefur alla burði til að vera einn besti miðjumaður ensku úrvalsdeildarinnar.

Gaman að fylgjast með: Antonio Silva
Nafn sem flestir Football Manager-spilarar þekkja vel. Portúgalski miðvörðurinn hefur árum saman verið talinn einn efnilegasti varnarmaður Evrópu og fær nú tækifæri til að sýna hæfileika sína í ensku úrvalsdeildinni með Bournemouth. Þrátt fyrir ungan aldur býr hann yfir mikilli reynslu. Silva er yfirvegaður með boltann, sterkur í loftinu og les leikinn einstaklega vel.

Besta og versta mögulega niðurstaða: Ef allt gengur að óskum þá ætti Bournemouth að geta barist um það að komast aftur í Evrópukeppni og félagið stefnir væntanlega á það að vinna Evrópudeildina næsta vor. Ef allt fer á versta veg og leikjaálagið verður of mikið, þá verður Bournemouth í neðri hlutanum en þó ekki í fallbaráttu. Meiðsli Junior Eli Kroupi eru ekki góð tíðindi og spurning hvernig gengur þá mánuði sem hann verður frá.

Þau sem spáðu: Arngrímur Alex Birgisson, Elíza Gígja Ómarsdóttir, Elvar Geir Magnússon, Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson, Hafþór Örn Laursen, Haraldur Örn Haraldsson, Ívar Björgvinsson, Jóhann Þór Hólmgrímsson, Kári Snorrason, Mate Dalmay, Snæbjört Pálsdóttir, Stefán Marteinn Ólafsson, Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke.
Spáin fyrir enska - 9. sæti

Mynd: Bournemouth

Liðin fengu eitt stig og upp í 20 eftir það hvar hver og einn spáði þeim. Liðið í síðasta sæti fékk eitt stig, liðið í 19. sæti tvö stig og koll af kolli. Stigin í spánni tengjast á engan hátt stigafjölda liðanna í deildinni..

Spáin:
1. ?
2. ?
3. ?
4. ?
5. ?
6. ?
7. ?
8. ?
9. Bournemouth, 135 stig
10. Newcastle, 128 stig
11. Everton, 123 stig
12. Brentford, 111 stig
13. Crystal Palace, 101 stig
14. Leeds United, 95 stig
15. Fulham, 90 stig
16. Nottingham Forest, 85 stig
17. Sunderland, 78 stig
18. Coventry City, 42 stig
19. Ipswich Town, 32 stig
20. Hull City, 14 stig
Spáin fyrir enska - 9. sæti

Mynd: EPA

Fleiri fréttir

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.