Fotbolti.net
15.08.26 - 14:56
Brynjar Ingi Erluson

Southampton hafnar tilboði frá Benfica

Southampton hafnar tilboði frá Benfica
Canon

Mynd: Southampton

Southampton hefur hafnað 17 milljóna punda tilboði portúgalska stórliðsins Benfica í enska varnarmanninn Taylor Harwood-Bellis.
Harwood-Bellis er 24 ára gamall miðvörður sem kom til Southampton á láni frá Manchester City árið 2023. Félagið var ánægt með frammistöðu hans og keypti hann ári síðar.

Benfica vill fá Harwood-Bellis í stað Antonio Silva, sem var seldur til Bournemouth í sumar, en Southampton hefur hafnað fyrsta tilboði Portúgalanna upp á sautján milljónir punda.

Samkvæmt Sky Sports vill Southampton fá 30 milljónir punda fyrir Harwood-Bellis sem á tvö ár eftir af samningi sínum við B-deildarfélagið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.