Fotbolti.net
15.08.26 - 11:58
Brynjar Ingi Erluson

Tottenham selur varnarmann til Middlesbrough (Staðfest)

Tottenham selur varnarmann til Middlesbrough (Staðfest)
Canon

Mynd: Middlesbrough

Tottenham hefur selt enska varnarmanninn Ashley Phillips til enska B-deildarfélagsins Middlesbrough.
Phillips er 21 árs gamall og hefur þegar öðlast ágæta reynslu í B-deildinni eftir lánsdvalir hjá Stoke og Plymouth. Hann var valinn besti ungi leikmaður Plymouth á lokahófi félagsins.

Hann gekk til liðs við Tottenham frá Blackburn Rovers árið 2023 en lék aldrei keppnisleik með Lundúnafélaginu.

Middlesbrough greiðir sjö milljónir punda fyrir Phillips en kaupverðið gæti hækkað um þrettán milljónir til viðbótar ef ákveðin skilyrði verða uppfyllt.

Phillips, sem er fastamaður í U21 árs landsliði Englands, skrifaði undir langtímasamning við Boro.

„Þetta er félag sem á heima í ensku úrvalsdeildinni. Vonandi verð ég góð viðbót við þennan þegar sterka hóp og get hjálpað liðinu að afreka stórkostlega hluti á tímabilinu,“ sagði Phillips.

Hann er áttundi leikmaðurinn sem Boro fær í sumarglugganum á eftir þeim Jeremy Sarmiento, Myles Peart-Harris, Kyle Joseph, Will Lankshear, Sebastian Berhalter, Max Arfsten og Radek Vitek.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.