15.08.26 - 10:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Stjóri Aberdeen um Kjartan: Gaf það skýrt til kynna að hann vildi ekki vera hérna

Mynd: Brann

Mynd: Brann
Kjartan Már Kjartansson gekk til liðs við Brann frá Aberdeen á dögunum.
Kjartan gekk til liðs við Aberdeen frá Stjörnunni síðasta sumar en tækifærin voru af skornum skammti á síðustu leiktíð. Kjartan, sem var keyptur á 250 þúsund pund og skrifaði undir fjögurra ára samning, byrjaði þrjá leiki og kom fimm sinnum inn á sem varamaður. Hann lagði upp eitt mark í leikjunum átta.

TENGT EFNI
Kjartan Már til Brann (Staðfest) - „Eggert sagði að ég myndi elska að spila hér"
Stephen Robinson, sem var ráðinn stjóri Aberdeen í mars, var í athyglisverðu viðtali þar sem hann tjáði sig um söluna á Kjartani.
„Hann gaf það mjög skýrt til kynna að hann vildi ekki vera hérna frá því ég gekk hingað inn. Þegar leikmaður segir þetta við þig verður þú að gera bestu mögulegu viðskiptin. Við erum vel varðir ef Kjartan nær að sýna þá hæfileika sem hann kom hingað með," sagði Robinson.
„Ég vil hungraða leikmenn, leikmenn sem hlaupa í gegnum veggi fyrir Aberdeen. Þegar einhver gefur skýrt til kynna að hann vilji ekki vera hérna er eina í stöðunni að finna bestu lausnina."