15.10.26 - 14:03
Kári Snorrason
Króati tekinn við Loga og félögum - Fór í bann fyrir að slá Leroy Sane

Sló Sane fyrir tveimur árum.

Mynd: EPA

Logi Tómasson er leikmaður Samsunspor.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sló Sane fyrir tveimur árum.

Mynd: EPA
Króatinn Nenad Bjelica hefur tekið við þjálfun tyrkneska félagsins Samsunspor eftir að Þjóðverjanum Thorsten Fink var sagt upp störfum fyrr í vikunni.
Landsliðsmaðurinn Logi Tómasson leikur með Samsunspor og hefur verið í byrjunarliðinu í öllum leikjum liðsins það sem af er tímabili.
Landsliðsmaðurinn Logi Tómasson leikur með Samsunspor og hefur verið í byrjunarliðinu í öllum leikjum liðsins það sem af er tímabili.

TENGT EFNI
Þjálfari Loga rekinn eftir slaka byrjun
Samsunspor hefur farið illa af stað í tyrknesku úrvalsdeildinni og situr í 17. sæti, næstneðsta sæti deildarinnar. Liðið hafnaði í sjöunda sæti á síðasta tímabili.
Bjelica þekkir vel til hjá Samsunspor en hann stýrði félaginu áður árið 2023. Hann var síðast við stjórnvölinn hjá Dinamo Zagreb í heimalandinu.
Bjelica komst í heimsfréttirnar fyrir tæpum þremur árum þegar hann var stjóri Union Berlin. Þá sló hann Leroy Sané, leikmann Bayern Munchen, í andlitið í viðureign liðanna í þýsku Bundesligunni. Króatinn fékk þriggja leikja bann fyrir óíþróttamannslega framkomu.