Watkins orðaður við United - Bayern sýnir Díaz áhuga - Arsenal hefur rætt við Eze
   fös 15. nóvember 2019 20:22
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Flugeldar á loft í Helsinki - Stuðningsmaður öskraði á Pukki
Finnland tryggði sér sæti á EM 2020 fyrr í dag með sigri gegn lærisveinum Helga Kolviðssonar í Liechtenstein á heimavelli, 3-0.

Hingað til hafa helstu íþróttaafrek Finna verið í rallý, íshokkí og spjótkasti en nú er fótboltinn á mikilli uppleið í landinu. Þetta er í fyrsta sinn sem Finnland kemst á stórmót í fótbolta.

Gaman verður að fylgjast með Teemu Pukki og félögum næsta sumar, en hvort Ísland verður ásamt Finnum á EM á eftir að koma í ljós.

Hér að neðan má sjá myndband af því þegar flautað var til leiksloka í Helsinki.

Áhorfendur hlupu inn á völlinn og fögnuðu með leikmönnum, einn þeirra öskraði á Pukki í miðju viðtali. Svo var auðvitað flugeldasýning, eins og þegar Ísland tryggði sér sæti á HM árið 2017.


Athugasemdir
banner
banner