Þorsteinn Halldórsson hefur valið hóp fyrir útileiki gegn Spáni og Englandi í undankeppni HM. HM fer fram í Brasilíu 2027. Um er að ræða fyrstu tvo leiki Íslands í undankeppni HM 2027. Ísland mætir Spáni þriðjudaginn 3. mars á Estadio Municipal Castalia í Castellon. Ísland mætir svo Englandi laugardaginn 7. mars á City Ground í Nottingham. Báðir leikirnir verða sýndir í beinni útsendingu á RÚV.
Leikirnir eru þeir fyrstu hjá Íslandi frá því að Ísland vann Norður-Írland í Þjóðadeildarumspilinu í lok október.
23 leikmenn eru í hópnum og eru tveir nýliða, þær Elín Helena Karlsdóttir og Birta Georgsdóttir. Birta var valin besti leikmaður Bestu deildarinnar í fyrra og gekk fyrr á þessu ári í raðir Genoa á Ítalíu.
Agla María Albertsdóttir, Arna Eiríksdóttir, Vigdís Lilja Kristjánsdóttir og Amanda Andradóttir eru ekki í hópnum að þessu sinni. Þær Berglind Rós Ágústdóttir og Ída Marín Hermannsdóttir snúa aftur í hópinn. Berglind var ekki með í haust en Ída hefur ekki verið í hópnum síðan 2022.

Hópurinn
Markverðir
Telma Ívarsdóttir - Glasgow Rangers
Fanney Inga Birkisdóttir - BK Häcken
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Inter Milan
Útileikmenn
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Bröndby IF
Ingibjörg Sigurðardóttir - SC Freiburg
Glódís Perla Viggósdóttir - Bayern Munich
Guðrún Arnardóttir - Hammarby Fotboll
Elín Helena Karlsdóttir - Breiðablik
Sædís Rún Heiðarsdóttir - Valerenga
María Catharina Ólafsd. Gros - Djurgårdens IF Fotboll
Alexandra Jóhannsdóttir - Kristianstads DFF
Katla Tryggvadóttir - ACF Fiorentina
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Inter Milan
Ída Marín Hermannsdóttir - FH
Hildur Antonsdóttir - Madrid CFF
Berglind Rós Ágústsdóttir - Valur
Sandra María Jessen - 1. FC. Köln
Birta Georgsdóttir - Genoa CFC
Sveindís Jane Jónsdóttir - Angel City FC
Hlín Eiríksdóttir - ACF Fiorentina
Diljá Ýr Zomers - SK Brann
Emilía Kiær Ásgeirsdóttir - RB Leipzig
Thelma Karen Pálmadóttir - BK Häcken
Athugasemdir