Fotbolti.net
16.03.21 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Dion farinn frá Þrótti - Aron Ingi til félagsins (Staðfest)

Dion Acoff.

Dion Acoff.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Bandaríski kantmaðurinn Dion Acoff mun ekki spila með Þrótti Reykjavík í sumar.
Acoff, sem er 29 ára gamall, kom til Þróttar fyrir síðasta tímabil en hann spilaði einnig með félaginu 2015 og 2016. Hann náði ekki mikið að beita sér í Lengjudeildinni vegna meiðsla. Hann spilaði níu leiki í deildinni og skoraði eitt mark.

Spænski sóknarmaðurinn Esau Rojo Martinez farinn og enski varnarmaðurinn Tyler Brown eru einnig farnir frá félaginu.

Þá verður framherjinn Djordje Panic ekki áfram hjá félaginu en hann spilaði 18 leiki í deild og bikar í fyrra og skoraði tvö mörk.

Þróttarar eru búnir að bæta við sig vinstri bakverðinum Aroni Inga Kristinssyni en hann spilaði síðast með Kára 2019. Aron er uppalinn í ÍA en hefur einnig spilað með ÍR á ferlinum. Englendingarnir Sam Hewson og Kairo Edwards-John höfðu áður samið við félagið.

Þróttur hafnaði í tíunda sæti Lengjudeildarinnar í fyrra en Guðlaugur Baldursson tók við liðinu eftir tímabilið. Hewson verður spilandi aðstoðarþjálfari hans.
Esau Martinez Rojo.

Esau Martinez Rojo.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Djordje Panic.

Djordje Panic.

Canon

Mynd: Þróttur R.

Aron Ingi Kristinsson.

Aron Ingi Kristinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.