Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 16. mars 2023 22:19
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Maguire: Ég er með mikilvægt hlutverk
Mynd: Getty Images

Harry Maguire varnarmaður Manchester United hefur ekki fengið mörg tækifæri með liðinu að undanförnu en hann fékk tækifæri í byrjunarliðinu í kvöld þegar liðið lagði Real Betis í Evrópudeildinni.


„Ég er með mikilvægt hlutverk innan sem utan vallar hjá þessu félagi og ég reyni á hverjum degi að ná árangri hvort sem ég spila eða ekki," sagði Maguire eftir leikinn í kvöld.

Maguire bar fyrirliðabandið í kvöld og sagði hann það mikilvægt fyrir sig og liðið.

„Auðvitað vill ég spila og byrja fleiri leiki en ég er að gera mitt innan sem utan vallar. Það er gaman að fá tækifærið að leiða liðið út, það var það mikilvægasta fyrir mig og hópinn," sagði Maguire.


Athugasemdir
banner
banner