16.05.15 - 06:00
Fótbolti.net
Jens Elvar og sex aðrir í Kríu (Staðfest)

Jens Elvar er orðinn leikmaður Kríu.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Jens Elvar er orðinn leikmaður Kríu.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson
Það var engin lognmolla á Seltjarnarnesinu á síðasta degi félagaskiptagluggans. Sjö leikmenn gengu til liðs við 4. deildarlið Kríu og má þar helst nefna þá Hrafn Jónsson og Jens Elvar Sævarsson.
Hrafn á að baki 145 leiki fyrir meistaraflokk Gróttu en hann er við nám í Svíþjóð og mun stoppa stutt við á Íslandi í sumar. Jens Elvar gekk til liðs við Gróttu haustið 2012 og var í tvö tímabil spilandi aðstoðarþjálfari meistaraflokks. Jens er þjálfari 2. flokks karla hjá Gróttu.
Ólafur Páll Johnson, Sigurður Steinar Jónsson, Björn Valdimarsson, Stefán Hirst Friðriksson og Grétar Ali Khan gengu einnig til liðs við Kríu í gær en sá síðastnefndi lék með Gróttu seinni hluta sumars í fyrra eftir að hafa byrjað tímabilið hjá Kríu.
Einn leikmaður yfirgaf Kríu í dag en framherjinn litríki Davíð Logi Gunnarsson skipti yfir í SR þar sem hann hittir fyrir fyrrum félaga úr Þrótti.