Fotbolti.net
16.05.15 - 07:00
Magnús Már Einarsson

Stefán Birgir aftur í Njarðvík (Staðfest)

Stefán Birgir aftur í Njarðvík (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Njarðvík hefur fengið sóknarmannin Stefán Birgir Jóhannesson til liðs við sig frá Fram.

Stefán Birgir er fæddur árið 1993 en hann þekkir til hjá Njarðvík því hann spilaði með liðinu í fyrra.

Stefán lék með Fram í yngri flokkunum og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki þar áður en hann fór til Leiknis fyrir sumarið 2013.
Í fyrra skoraði Stefán fimm mörk í 23 leikjum í deild og bikar með Njarðvík.

Hann samdi við Fram eftir tímabilið en hefur nú gengið til liðs við Njarðvík á nýjan leik.

Njarðvík sigraði Hött 1-0 á útivelli í fyrstu umferðinni í annarri deildinni um síðustu helgi.

Liðið spilar við Tindastól í 2. umferðinni klukkan 14:00 í dag en Stefán Birgir gæti komið við sögu þar.

Leikir dagsins í 2. deild
14:00 ÍR-Sindri (Hertz völlurinn)
14:00 Njarðvík-Tindastóll (Njarðtaksvöllurinn)
16:00 KF-Afturelding (KA-völlur)
16:30 Leiknir F.-Dalvík/Reynir (Fjarðabyggðarhöllin)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.