Fotbolti.net
16.05.15 - 16:57
Magnús Már Einarsson

Þýskur markvörður til BÍ/Bolungarvíkur (Staðfest)

Phillip Saunders verður ekki meira með BÍ/Bolungarvík í sumar.

Phillip Saunders verður ekki meira með BÍ/Bolungarvík í sumar.

Canon

Mynd: Sunnlenska.is - Guðmundur Karl

Bandaríski markvörðurinn Philip Saunders verður líklega ekkert með BÍ/Bolungarvík í sumar vegna meiðsla.

Philip meiddist illa á úlnið á æfingu í vikunni og er farinn aftur heim til Bandaríkjanna.

Í hans stað ætlar BÍ/Bolungarvík að fá Fabian Broich sem spilaði tvo leiki með liðinu í fyrstu deildinni í fyrra.

Broich er frá Þýskalandi en hann er fæddur árið 1990.
„Hann er ennþá skráður í félagið og hann verður með okkur í sumar,\" sagði Jón Hálfdán Pétursson þjálfari BÍ/Bolungarvíkur við Fótbolta.net í dag.

Hinn 16 ára gamli Daði Freyr Arnarsson stóð vaktina í markinu í 5-0 tapinu gegn Þrótti í dag.

Daði varði mark BÍ/Bolungarvíkur á undirbúningstímabilinu en hann hefur verið í úrtökum fyrir yngri landslið Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.