Fotbolti.net
16.07.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Atletico með flesta fulltrúa í úrslitaleiknum þriðja mótið í röð

Julian Alvarez

Julian Alvarez

Canon

Mynd: EPA

Tíu leikmenn sem spiluðu með Atletico Madrid á síðustu leiktíð verða í úrslitaleiknum á HM í ár.
Argentína og Spánn munu mætast í úrslitaleiknum á sunnudaginn. Argentína vann ótrúlega dramatískan endurkomusigur á Englandi í gær en Spánn vann öruggan sigur á Frakklandi á þriðjudaginn.

Marcos Llorente, Marc Pubill, Álex Baena og Alejandro Grimaldo eru í spænska hópnum og Juan Musso, Nahuel Molina, Nico González, Julián Alvarez, Thiago Almada og Giuliano Simeone eru í argentíska hópnum.

Það er spurning hversu margir verða hjá liðinu næsta vetur en Alvarez hefur m.a. verið sterklega orðaður frá félaginu og González var á láni frá Juventus á síðustu leiktíð.

Þetta er þriðja mótið í röð sem Atletico á flesta fulltrúa í úrslitaleiknum en liðið átti fjóra fulltrúa árið 2018 og fjóra árið 2022.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.