Neville kveikti í Romero og Martínez - „Verð vonandi ekki eins og hann"

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Cristian Romero, varnarmaður argentíska landsliðsins, skaut föstum skotum á enska sérfræðinginn Gary Neville eftir sigur Argentínu á Englandi í undanúrslitum á HM í gær.
Neville var mjög kokhraustur fyrir leikinn og gagnrýndi Romero og Lisandro Martínez.
„Ég sé ekki hvernig við skorum ekki í það minnsta tvö mörk gegn Argentínu. Þeir eru besta-versta miðvarðarpar í heimi. Þeir fara úr því að vera frábærir í það að vera fáránlega lélegir. Það eru Cristian Romero og Lisandro Martínez sem virðast gefa eitt mark í hverjum leik," sagði Neville.
„Svo sérðu þá aftur og þeir skora mörk, vinna alla skallabolta og eru alls staðar."
Romero svaraði Neville fullum hálsi eftir leikinn.
„Það kviknaði í okkur fyrir leikinn út af því sem Gary Neville sagði. Englendingar elska að tjá sig fyrir leiki. Við sendum honum stórt knús. Ég vona að ég verði ekki eins og hann þegar ég hætti, ég mun ekki gagnrýna leikmenn," sagði Romero.