Fotbolti.net
16.07.26 - 10:37
Kári Snorrason

Gunni Birgis lýsir úrslitaleik HM

Lýsir úrslitaleiknum.

Lýsir úrslitaleiknum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gunnar Birgisson mun lýsa leik Argentínu og Spánar í úrslitum heimsmeistaramótsins næstkomandi sunnudag. Meðlýsandi verður Ólafur Kristjánsson.

Þá mun Einar Örn Jónsson lýsa bronsleik Englands og Frakklands sem fer fram á laugardaginn. Einar lýsti úrslitaleik Argentínu og Frakklands fyrir fjórum árum.
Eiður Smári hlaut yfirburðakosningu
TENGT EFNI

Eiður Smári hlaut yfirburðakosningu

Eiður Smári Guðjohnsen mun snúa aftur sem sérfræðingur í kringum úrslitaleikinn. Hann hefur ekki verið í setti undanfarna viku þar sem hann hefur verið að þjálfa börn á Spáni.

Eiður var valinn vinsælasti álitsgjafinn í HM kvöldi á Rúv í könnun meðal lesenda hér á Fótbolta.net en hann hlaut 47% atkvæða.

Hörður Magnússon var valinn vinsælasti lýsandinn á HM í lesendakönnun hér á Fótbolta.net með 36% atkvæða. Gunnar fylgdi honum fast á eftir með 33% atkvæða.
Snýr aftur sem sérfræðingur eftir viku hlé.

Snýr aftur sem sérfræðingur eftir viku hlé.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.