16.07.26
Tíu ár frá toppnum - Fjölnir ekki verið á verri stað í rúm 20 ár og fjárhagurinn í molum
ÍVAR BJÖRGVINSSON
Ungmennafélagið Fjölnir var stofnað árið 1988 og er eina íþróttafélag Grafarvogs, sem hýsir tæplega 20.000 manns. Þrátt fyrir stærðarinnar hverfi eru bæði knattspyrnuliðin, karla- og kvennaliðið, í 2. deild í ár. Karlaliðið situr í dag í 5. sæti deildarinnar en það eru minna en tíu ár eru síðan liðið hafnaði í 4. sæti Bestu deildarinnar, hársbreidd frá Evrópusæti og aðeins fimm stigum frá Íslandsmeistaratitlinum. Liðið lék í efstu deild síðast árið 2020 en féll þá eftir að hafa mistekist að ná í sigur allt tímabilið og hefur gengið farið versnandi síðan þá. Fjölnir er í öldudal þrátt fyrir að stutt sé síðan félagið var í hæstu hæðum og spurningin er hvað veldur þessari snöggu breytingu. Hvað fór úrskeiðis á þessum tíma er spurning sem margir velta fyrir sér og verður svarið við henni skoðað en Fótbolti.net heyrði í mörgum aðilum sem tengjast Fjölni á einn eða annan hátt við gerð greinarinnar. Fyrrum leikmenn, fyrrum þjálfari, núverandi framkvæmdastjóri Fjölnis og núverandi rekstrarstjóri knattspyrnudeildarinnar tjáðu sig um sögu félagsins, þá erfiðu stöðu sem hefur myndast innan þess síðastliðin ár og hvernig sé verið að vinna að bættu gengi fjárhagslega og inni á vellinum.





