Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   sun 16. september 2018 16:46
Kristófer Jónsson
Pálmi Rafn: Verðum bara að hugsa um okkar leiki
Pálmi var maður leiksins í dag
Pálmi var maður leiksins í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pálmi Rafn Pálmason, leikmaður KR, var maður leiksins í 3-1 sigri liðsins á botnliði Keflavík. Pálmi skoraði tvö mörk og lagði upp eitt.

„Ég er ánægður með þrjú stig og góða spilamennsku á stórum köflum. Við áttum erfitt með þá í fyrri hálfleik. En eftir sem að leið á leikinn náðum við betri tökum." sagði Pálmi eftir leik.

Eins og fyrr segir var Pálmi frábær í þessum leik og skoraði tvö mörk. Hann fékk svo gott færi til að fullkomna þrennuna undir lok leiks en skot hans fór þá rétt framhjá markinu.

Lestu um leikinn: KR 3 -  1 Keflavík

„Þetta var bara lélegt hjá mér og það hefði verið gott að fá fjórða markið fyrir okkur. Ég verð bara að drullast til að klára þetta í næsta leik." sagði Pálmi um atvikið.

KR-ingar sitja í fjórða sæti deildarinnar og eru í bullandi Evrópubaráttu við FH sem að mistókst að vinna Víking R. á sama tíma.

„Við verðum bara að hugsa um okkar leiki og ef við klárum þá erum við komnir í Evrópu sem að við ætlum okkur. En það eru ennþá tveir leikir og allt getur gerst." sagði Pálmi að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner