mið 17. febrúar 2021 20:06
Ívan Guðjón Baldursson
Jóhann Berg fór meiddur af velli
Mynd: Getty Images
Jóhann Berg Guðmundsson fór meiddur af velli á 40. mínútu í 1-1 jafntefli Burnley gegn Fulham í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Staðan var markalaus í jöfnum leik þegar Jóhanni Berg var skipt útaf fyrir Robbie Brady.

Jói Berg er nýlega kominn til baka eftir meiðsli og hefur verið að gera mjög góða hluti með Burnley.

Jói meiddist eftir að hafa farið í tæklingu á 38. mínútu og vissi strax að hann þyrfti að fara af velli. Þetta leit afar illa út, líklegast hnéð að stríða honum enn eina ferðina.
Athugasemdir
banner
banner