„Fullhlaðinn," skrifaði Harry Maguire, varnarmaður Manchester United, við myndir sem hann birtir frá Íslandsferð sinni.
Það er ekki mikið leikjaálag hjá Manchester United sem tók ekki þátt í Evrópukeppni þetta tímabilið og er dottið út úr báðum bikarkeppnunum.
Bráðabirgðastjórinn Michael Carrick hefur verið duglegur við að gefa leikmönnum frí milli leikja og Maguire ákvað að skella sér til Íslands til að hlaða batteríin.
Það var bikarhelgi um síðustu helgi og Maguire og eiginkona hans, Fern Hawkins, höfðu það gott hér á landi.
Maguire hefur nú birt myndir af ferðalagi sínu um Ísland og fylgjendur hans á samfélagsmiðlum dást að fegurð landsins.
Næsti leikur Manchester United verður gegn Everton á mánudaginn en Maguire hefur verið í stóru hlutverki eftir að Carrick tók við stjórnartaumunum.

Athugasemdir