Fotbolti.net
17.02.26 - 14:00
Elvar Geir Magnússon

Pereira: Fer á barinn þegar mér finnst ég eiga það skilið

Pereira fagnaði sigrum hjá Wolves með því að fara á barinn með stuðngsmönnum.

Pereira fagnaði sigrum hjá Wolves með því að fara á barinn með stuðngsmönnum.

Canon

Mynd: Samsett

Vitor Pereira, nýr stjóri Nottingham Forest, ræddi í dag í fyrsta skipti við fjölmiðla eftir að hann var ráðinn í starfið.

Portúgalinn tjáði sig meðal annars um þá hefð sem hann var með sem stjóri Wolves en hann var þá vanur því að skella sér á barinn eftir sigurleiki og skála við stuðningsmenn.

„Svona er bara minn persónuleiki. Ég er einfaldur og heiðarlegur náungi, þegar mér finnst ég eiga skilið að fá mér bjór þá fer ég að sjálfsögðu á barinn," segir Periera.
Hefur trú á gæðum leikmanna
Nottingham Forest er í 17. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsæti. Pereira er fjórði stjóri liðsins á tímabilinu.

„Ég er hlynntur því að ræða um nútíðina og framtíðina. Þetta hefur verið erfitt tímabil fyrir leikmenn því þeir eru búnir að vera með mismunandi aðferðafræði og stjóra. Ástæðan fyrir því að ég tók starfinu er sú að ég hef trú á gæðum leikmanna, möguleika félagsins og metnaði eigandans. Þetta er besta deild heims," segir Pereira um verkefni sitt.

Pereira varð tvöfaldur meistari sem stjóri hjá Olympiakos í Grikklandi 2015 en Evangelos Marinakis á bæði Forest og Olympiakos.

„Hann er tilfinningaríkur, hann vill vinna. Hann er metnaðarfullur og ég man vel kraftinn og eldmóðinn sem við sköpuðum hjá Olympiakos. Hann var ánægður með hvernig við unnum saman þegar við unnum deildina og bikarinn í Grikklandi," segir Pereira um eigandann umdeilda.
Vitor Pereira.

Vitor Pereira.

Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Evangelos Marinakis, eigandi Nottingham Forest.

Evangelos Marinakis, eigandi Nottingham Forest.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.